Köfunarbáturinn okkar er nú kominn í fulla notkun. Við höfum þegar farið í fjóra túra með upp í átta kafara í ferð.
Tvær ferðir hafa verið farnar suður með Vatnsleysuströnd, ein að Helguskeri og ein við flugvélaflakið við Álftanes. Menn eru á einu máli um að tilkoma bátsins sé algjör bylting í köfunarmöguleikum á svæðinu. þegar hefur fundist eitt flak sem ekki var vitað um áður, og gerðist það þegar í fyrsta túr, svo ekki byrjaði það amalega. það eru allir velkomnir að vera í sambandi og slást í för með okkur á bátnum. það verða í að minnsta kosti vikulegar kafanir á dagskrá.