Um okkur
Köfunarskólinn Kafarinn.is var stofnaður árið 2001 þegar eigandi skólans og stofnandi Héðinn Ólafsson sneri heim eftir köfunarkennaranám í Bretlandi. Framan af var Héðinn eini kennari skólans og sá að mestu um alla starfsemi. Þó kom svo að Jón Alexander Elíasson hóf störf hjá skólanum eftir að hafa klárað Divemaster námskeið hjá Héðni. Jón tók í framhaldi af því kennararéttindi og starfaði við skólann fram á haustið 2008 þegar hann flutti til Barcelona þar sem hann býr í dag. Vorið 2008 var haldið hér á landi kennaranámskeið og við það bættust í hópinn Jónína Herdís Ólafsdóttir, Kjartan Þór Birgisson og Jóhannes Magnússon. Jónína Herdís starfaði við skólann í fullu starfi sumarið 2008. Auk þessara erum við með Divemaster gráðað fólk í hlutastarfi við skólann.
Kafarinn.is er með húsnæði við Ásbúðartröð 17 í Hafnarfirði. Á staðnum er verslun sem er opinn eftir samkomulagi. Á staðnum færðu alla þjónustu þ.e. allar köfunarvörur, viðgerðarþjónustu, loft og Nitrox fyllingar.
Kafarinn.is veitir alhliða þjónustu við kafara. Sölu og viðhald á búnaði, öll PADI námskeið frá Open water upp í Divemaster auk fjölda sérnámskeiða (Specialty).
Kafarinn.is rekur einnig kafarafélag sem veitir félögum ýmis hlunnindi. Frekar um það HÉR.